Íslandsfélagið í Belgíu: 22.06.2010 |
|---|
Stjórn Íslandsfélagsins vill þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína á 17. júní hátíðarhöld Íslandsfélagsins í Waterloo á laugardaginn. Um 38 konur og karlkonur tóku þátt í kvennahlaupinu og alls voru hátíðargestir eitthvað í kringum 80 manns.... |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 22.06.2010
Félag Íslendinga í Luxembourg: 10.06.2010
Lúxemborg: 02.06.2010
Ísland var eitt þeirra ríkja sem sátu hjá þegar allsherjarþing SÞ samþykkti ályktun um réttindi til vatns og hreinlætis. Skv. upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu ákvað Ísland að sitja hjá þar sem ályktunin geti grafið undan samkomulagi um vatnsréttindi sem Mannréttindaráð SÞ vinni að.
Ríflega þrjátíu lið hafa skráð sig í Mýrarboltann sem fer fram á Ísafirði um helgina, 21 karlalið og tólf kvennalið. Misjafnt er hve margir eru í hverju liði en kvennalið telja yfirleitt um 12-15 manns og karlalið 9-12 manns. Sex í hvoru liði eru inni á vellinum í einu og er ört skipt út af því það kostar mikið erfiði að athafna sig í drullunni.
Forsvarsmaður Spalar, rekstrarfélags Hvalfjarðarganga, segir að það sé á verkáætlun að bæta öryggisþætti í göngunum, en þau fengu falleinkunn í nýrri könnun samtaka þýskra bíleigenda (ADAC).
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, segist hafa rætt við Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmann hennar, um óheppilegan tölvupóst sem komst í fréttir í vikunni. Hafi Elías Jón beðist afsökunar og hann hafi einnig beðist opinberlega afsökunar á málinu í Ríkisútvarpinu í gær.