Vefurinn er hugarsmíð Hermanns B. Reynissonar, sem hefur margra ára reynslu að félagsstörfum tengdum átthagafélögum, sat í stjórn Félags Íslendinga í Luxembourg frá árinu 1992 og var formaður þess árin 1993-1996 og þar með lengst sitjandi formaður í sögu félagsins til þessa. Hermann hefur einnig látið að sér kveða í tónlistarflutningi, hefur spilað á ýmis hljóðfæri í gegnum árin hjá leikklúbbnum Spuna á árlegum uppfærslum þeirra og stýrt hljómsveit Agnars Sigurvinssonar sem spilar jólalög á jólaballi Félags Íslendinga í Luxembourg. Hann stofnaði kirkjukór íslenska safnaðarins í Luxembourg sem hann stjórnar og er jafnframt organisti íslenska safnaðarins í Luxembourg. Hann starfar sem flugstjóri hjá Cargolux Airlines International S.A. í Luxembourg.
Sigurbjörn Ragnarsson rekur vefinn http://www.flugnet.com og hefur verið Hermanni innan handar við gerð vefsins frá því 2005. Sigurbjörn er úrræðagóður með veflausnir og mega lesendur njóta úrræðasemi hans um ókomna framtíð. Hann er nokkuð frambærilegur gítarleikari og enn betri flugmaður.
Þórður E. Halldórsson, æskuvinur Hermanns úr Keflavík, er forritari og ráðgjafi, hugsar í 01010101 og er þess vegna einstaklega hjálplegur þegar kemur að djúpri hugsun.
Björn Hólmþórsson, forritari hjá Landsbankanum í Luxembourg aðstoðar við úrlausnir, hógvær og rólegur. Hann spilar líka á gítar og fer á hestbak með Hermanni. Hann er öflugur handboltaleikari.
Ofangreindir nördar taka allir þátt í forritun vefsins og úrlausnum.
Setrið er opið öllum átthagafélögum og Íslandsvinum í Evrópu, endurgjaldslaust. Vefurinn vill bera fregnir af austur-íslendingum hvar sem kunna að leynast.