Íslandsfélagið í Belgíu: 05.05.2010 |
|---|
Gönguferðin verður á sunnudaginn! |
|---|
Leyndardómar Brussel – Gönguferð með Jóni Óskari Sólnes Ágætu félagar, um leið og stjórn Íslandsfélagsins biðst velvirðingar á því að hafa frestað gönguferðinni um miðborg Brussel síðastliðinn sunnudag, undir leiðsögn Jóns Óskars Sólness, er nú blásið í herlúðrana og boðað til gönguferðarinnar sunnudaginn 9. maí, sama hvað tautar og raular í belgískum veðurfræðingum. Langtíma veðurspá gerir ráð fyrir 16-18 stiga hita, logni og skúrum. Lagt verður upp frá konungshöllinni, til móts við Parc garðinn (Metro stöðin Parc skammt frá) kl. 15:45 og gengið niður á Paleizstraat, gegnt höllinni, en þar geta þeir sem koma akandi (yfirleitt næg bílastæði) slegist í hópinn, þó aldrei síðar en kl. 16:00. Jón ku þekkja vel til sögu miðbæjarins og helstu bygginga, en hvetur alla til að leggja orð í belg. Ráðgert er að túrinn taki ríflega 90 mínútur, með viðkomu á sossum eins og einu kaffihúsi, en honum lýkur síðan við barinn „A la Couronne“, Rue Sainte Catherine 42, þar sem Íslandsfélagið mun bjóða öllum félögum, sem greitt hafa árgjaldið, upp á hressingu. Fyrir þá sem vilja glöggva sig á væntanlegri gönguleið er bent á kortið hér (sjá einnig viðhengi): Kort af gonguleidinni Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í ferðina, en stjórnin hvetur alla til að mæta og skorar um leið á þá sem eiga ógreidd félagsgjöld að standa skil sem allra fyrst, á reikning félagsins nr. ING 310-1074359-73. Takið fram að um greiðslu árgjalds sé að ræða. Stjórnin |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 05.05.2010