.:: Fréttir og tilkynningar
.:: Fréttabréf
.:: Stjórn félagsins
.:: Lög félagsins
.:: Símaskrá
.:: Íslenski skólinn



.:: Sendiráđ Íslands
.:: Rćđisskrifstofa
.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


 

Íslandsfélagið í Belgíu icon Íslandsfélagið í Belgíu: 05.05.2010
Skráning í vorferð Íslandsfélagsins 2010!
Nú er komið að því að skrá sig í vorferð Íslandsfélagsins sem farin verður laugardaginn 29. maí. Sendið skráningu á netfangið islandsfelag@gmail.com. Takið fram að um skráningu sé að ræða og hversu margir verða í för. Skráningarfrestur er til loka sunnudagsins 16. maí. Mikilvægt er að þeir sem vilja gista á tjaldsvæðinu láti vita um fjölda fullorðinna, barna og aldur barnanna, en stjórnin þarf að panta tjaldstæðin í síðasta lagi 17. maí svo unnt sé að tryggja tjaldrými.

Nánar um vorferð Íslandsfélagsins til Gravelines:

Nú er komið að því að skrá sig í vorferð Íslandsfélagsins sem farin verður laugardaginn 29. maí. Áfangastaður er „Íslandsbærinn“ Gravelines á norðurströnd Frakklands, í u.þ.b. 180 km. fjarlægð frá Brussel. Vísast nánar til umfjöllunar um þennan snotra bæ í síðustu tveimur tölublöðum BELGS, en dagskráryfirlit hljóðar svo:

Kl. 12:30       Sameiginlegur hádegisverður á Le Retour d´Islande
Kl. 14:00       Opinber móttaka í ráðhúsi bæjarins
Kl. 15:00       Skoðunarferð í Íslendingahúsið Maison de l’Islandais / síkjasigling
Kl. 16:00       Síkjasigling / skoðunarferð í Maison de l’Islandais
Kl. 17:00       Skoðunarferð í sjóminjasafnið Musée de la Mer
Kl. 19:00       Grillveisla og kvöldvaka

Lagt er til að þeir sem ætla að gista á tjaldsvæði staðarins leggi af stað frá Brussel kl. 09 árdegis og hittist á Place Charles Valentin í miðbæ Gravelines (gegnt Hotel du Beffroi) kl. 11:30. Þaðan verði haldið á tjaldsvæðið Plage de Petit-Fort-Philippe og slegið upp tjöldum steinsnar frá ströndinni (sjá www.camping-des-dunes.com). Hópurinn hittist síðan allur á nefndu torgi, í síðasta lagi kl. 12:15. Þar mun gjaldkeri taka við greiðslum fyrir dagskrárliði, en fjárhæð ræðst af því hvort félagsgjöld hafa verið greidd eður ei.

Dagskráin hefst kl. 12:30 með hádegisverði á veitingastaðnum Le Retour d´Islande. Börnum standa til boða kjúklinganaggar, franskar, gosdrykkur og ís í eftirrétt á aðeins 5 evrur. Matseðill fyrir fullorðna er sem hér segir:

Menu proposé (15,00 € par personne) :
-           Cocktail de bienvenue et ses croques en bouche
-           Assiette de poisson fumé maison
-           Escalope de volaille savoyarde – pommes sautées et légumes du jour
-           Tarte aux fruits maison
-           Boissons : eau minérale – ¼ vin ou 1 bière ou 1 soda – café
Kl. 14:00 hefst opinber móttaka í ráðhúsinu. Að henni lokinni verður hópnum skipt. Helmingur skoðar Íslendingahúsið „Maison de l’Islandais“, á meðan hinn helmingurinn fer í siglingu um síki bæjarins. Er ráðgert að hvort um sig taki tæpa klukkustund, þannig að kjósi fólk að fara í hvoru tveggja þá ljúki þessum dagskrárlið um kl. 17:00. Formlegri dagskrá lýkur síðan kl. 18:00, eftir heimsókn í sjóminjasafnið „Musée de la Mer“.

Kl. 19:00 mun Íslandsfélagið standa fyrir grillveislu á tjaldsvæðinu. Félagsmenn þurfa aðeins að mæta með kjöt-tutlur og meðlæti, en stjórnin leggur til kol, diska, hnífapör, servíettur o.s.frv. og mun hafa á boðstólum drykki, jafnt fyrir unga sem aldna. „Drekkum veig sem viljum, vel glýjaðra þýja ...“ kvað Egill til forna og merki hans verður svo sannarlega haldið á lofti með kvöldvöku, gítarspili og söng fram undir myrkur, auk þess sem boðið verður upp á leiki fyrir börnin.

Ágætu félagar, nú ríður á að skrá sig í ferðina, á netfangið islandsfelag@gmail.com . Takið fram að um skráningu sé að ræða og hversu margir verða í för. Skráningarfrestur er til loka sunnudagsins 16. maí. Mikilvægt er að þeir sem vilja gista á tjaldsvæðinu láti vita um fjölda fullorðinna, barna og aldur barnanna, en stjórnin þarf að panta tjaldstæðin í síðasta lagi 17. maí svo unnt sé að tryggja tjaldrými.

Félagar, sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2010-2011, greiða aðeins 10 evrur fyrir hádegisverð og fá ókeypis aðgang að söfnum og bátsferðum. Börnum þeirra er og tryggður hádegisverður á 5 evrur. Sömu félagar og börn njóta ókeypis drykkjarveitinga í grillveislunni. Stjórnin hvetur því alla til að standa skil á ógreiddum félagsgjöldum, en reikningur félagsins er ING 310-1074359-73. Takið fram að um greiðslu árgjalds sé að ræða.

Stjórnin
Prenta þessa síðu


.:: Skođa eldri fréttir...

 

"