Íslandsfélagið í Belgíu: 13.05.2010 |
|---|
U18 ára karlalið Íslands í handbolta keppir á móti í Belgíu! |
|---|
Dagana 21.-23. maí næstkomandi mun U-18 ára karlalandslið Íslands í
handbolta keppa í forkeppni EM í bænum Tournai hér í Belgíu. Keppnin fer fram í Au Hall Des Sport De La Cet og
heimilisfangið er: 2 Avenue de Gaulle, Tournai, Région Wallonne 7500, Belgique Þetta er um klukkustundar keyrsla eins og sjá má á þessu korti: http://maps.google.com/maps?f= Leikir Íslands eru: Iceland vs Belgium (Friday 21 at 20.00) Iceland vs Ukraine (Saturday 22 at 19.00h) Iceland vs Norway (Sunday 23 at 11.00 in the morning) Hér má nálgast frétt HSÍ um keppnina þar sem m.a. kemur fram hvaða leikmenn munu mæta: http://www.hsi.is/HSI/Frettir? Um að gera að fjölmenna og styðja okkar menn svo þeir komist í úrslitakeppnina. Tilvalið að fara t.d. í laugardags- eða sunnudagsbíltúr og skoða bæinn Tournai og horfa svo á U18 ára liðið okkar spila leik. Borgin Tournai er ein af tveimur elstu borgum Belgíu og ku fögur, hér má nálgast upplýsingar um borgina: http://en.wikipedia.org/wiki/ Áfram Ísland! kk., Stjórnin |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 13.05.2010