Íslandsfélagið í Belgíu: 07.06.2010 |
|---|
17. júní hátíðarhöld Íslandsfélagsins í Belgíu |
|---|
Dagskráin er annars sem hér segir Kl. 13:00 Kvennahlaup Kl. 14:00 Ávarp fjallkonu Kl. 14:15 Skrúðganga Kl. 14:30 Grillveisla Kl. 15:00 Leikir fyrir unga sem aldna Kl. 17:00 Dagskrárlok Að loknu kvennahlaupi og afhendingu viðurkenninga mun fjallkona ávarpa hópinn, en því næst verður gengið fylktu liði í skrúðgöngu kringum skólabygginguna. Eru foreldrar hvattir til að koma með fána fyrir börn sín, en félagið mun reyna að útvega fána fyrir þá sem ekki eiga. Grillið verður á sínum stað og munu hinir annáluðu grillmeistarar Fúsi og Kalli töfra fram pylsur í pylsubrauðum, ásamt steiktum og hráum lauk, tómatsósu og að sjálfsögðu rammíslensku sinnepi og remúlaði. Spilað verður á gítar og lagið tekið. Öllum verður boðið upp á gosdrykki og djús, en fullorðnum stendur einnig til boða bjór og léttvín meðan birgðir endast. Boðið verður upp á ýmsa leiki fyrir alla aldurshópa, s.s. kubb-spilið, krókett, flugdreka, fótbolta, körfubolta, pokaboðhlaup og boðhlaup með borðtennisbolta og spaða. Börnin fá ókeypis bland í poka fyrir þátttöku í leikjum. Ráðgert er að dagskránni ljúki eigi síðar en kl. 17:00. Dagskráin er öllum opin, en stjórnin biður þó alla þá sem ekki hafa nú þegar greitt félagsgjald fyrir starfsárið 2010-2011 að minnast þess að forsenda fyrir öflugu félagsstarfi er sú að stjórnin hafi úr einhverjum fjármunum að moða. Stjórnin. |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 07.06.2010