.:: Fréttir og tilkynningar
.:: Fréttabréf
.:: Stjórn félagsins
.:: Lög félagsins
.:: Símaskrá
.:: Íslenski skólinn



.:: Sendiráđ Íslands
.:: Rćđisskrifstofa
.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


Smelliđ á myndina til ađ veđurspá fyrir Brussel

 


1. gr.

Heiti félagsins er Íslandsfélagið í Belgíu. Aðsetur þess og varnarþing er í Brussel.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að efla samskipti og félagslíf Íslendinga og Íslandsvina í Belgíu og auka menningarsamskipti Íslendinga og Belga.  

3. gr.

Á vegum félagsins er rekinn skóli í Brussel sem hefur það markmið að veita íslenskum börnum tilsögn í íslensku máli og menningu. Skólanefnd, sem skipuð skal þremur mönnum, ber ábyrgð á rekstri skólans og sér m.a. um ráðningu kennara. Stjórn félagsins skipar skólanefnd til eins árs í senn, frá 1. júní ár hvert og skal einn nefndarmanna vera úr stjórninni.

4. gr.

Aðild að félaginu er öllum heimil. Meðlimir félagsins skulu greiða félagsgjald í samræmi við ákvörðun aðalfundar.

5. gr.

Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 1. apríl ár hvert og til hans skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara. 

6. gr.

Stjórn félagsins, kosin á aðalfundi, skal skipuð sex félagsmönnum, formanni varaformanni, gjaldkera, ritara, fulltrúa í skólanefnd og fulltrúa í ritnefnd fréttabréfs félagsins. Formaður félagsins skal kjörinn sérstaklega en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti. Stjórnin skal kjörin til eins árs í senn. 

7. gr.

Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Skýrsla skólanefndar
  3. Samþykkt reikninga félagsins og skólans
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning formanns
  6. Kosning annarra stjórnarmanna og tveggja endurskoðenda
  7. Ákvörðun um félagsgjöld
  8. Önnur mál

8. gr.

 

Til að breyta samþykktum þessum þarf samþykki 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi. Tillögur um lagabreytingar skulu berast formanni félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Breytingartillögur sem berast eftir að þessi frestur rann út skulu teknar til meðferðar á aðalfundi ef meirihluti fundarmanna samþykkir.

-Lög Íslandsfélagsins í Belgíu voru samþykkt á aðalfundi 2003


.:: Skođa eldri fréttir...

 

"