.:: Fréttir og tilkynningar
.:: Fréttabréf
.:: Stjórn félagsins
.:: Lög félagsins
.:: Símaskrá
.:: Íslenski skólinn



.:: Sendiráđ Íslands
.:: Rćđisskrifstofa
.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


Smelliđ á myndina til ađ veđurspá fyrir Brussel

 

26.09.2008
Þá er komið að árlegri skráningu í Íslenska skólann hér í Brussel. Við vonum að allir hafi komið endurnærðir úr sumrafríinu og séu nú tilbúnir að takast á við verkefni komandi vetrar. Að höfðu samráði við þá kennara sem starfa munu við skólann í vetur og stjórn Íslandsfélagsins hefur verið ákveðið að skólinn verði starfræktur á sama tíma og skólaárið 2007-2008 eða á laugardögum frá kl. 10.30-13.00.  Það er von okkar að þessi tími henti sem flestum en við erum meðvituð um að aldrei sé hægt að finna tíma sem mætir þörfum allra. Fyrsti skóladagur verður 11. október.

28.09.2007

Skólinn verður settur laugardaginn 6.október nk. Kennsla hefst kl. 10:30 stundvíslega og lýkur kl. 13:00. Í skólann eru nú skráðir 27 nemendur og skiptast þeir í leikskólahóp og þrjá grunnskólahópa.

Samverustund leikskólabarna verður í umsjá  Steinunnar Pálsdóttur og Adelu Halldórsdóttur. Grunnskólahópur I  verður í umsjá Guðrúnar Grímsdóttur. Pétur Már Ólafsson mun hafa umsjón með Grunnskólahópi II og  Marion Gabriele Wiechert umsjón með elsta hópnum, Grunnskólahópi III.


29.09.2006

Skólinn verður settur sunnudaginn 1. október nk. kl. 10:30. stundvíslega. Sú breyting hefur orðið á að kennt verður á sunnudögum á haustmisseri og á laugardögum á vormisseri.

Kennsla hefst kl. 10:30 stundvíslega og lýkur kl. 13:00. Í skólann eru nú skráðir 23. nemendur og skiptast þeir í leikskólahóp og tvo grunnskólahópa. Steinunn Pálsdóttir og Rannveig Sigríður Sigurvinsdóttir hafa umsjón með leikskólahópnum, Guðríður Vilhjálmsdóttir hefur umsjón með yngri hópnum og Marion Gabriele Wiechert umsjón með elsta hópnum.


07.09.2006

Innan skamms hefst kennsla í Íslenska skólanum í Belgíu en skólinn hefur verið starfsræktur undanfarinn13 ár. Skipulag verður svipað og áður, 2-3 hópar á grunnskólastigi og einn leikskólahópur fyrir börn á aldrinum 3-5 ára. Endanleg samsetning í bekkjardeildir fer eftir aldurssamsetningu þeirra barna sem verða skráð við skólann í vetur. Skólinn verður í húsnæði Skandínavíska skólans í Waterloo eins og undnafarin ár.


19.09.2005
Kæru félagsmenn,
Skólanefnd Íslenskuskólans auglýsir eftir kennara til að taka að sér forskólahópinn í vetur. Hópurinn er á aldrinum 3-5 ára og eru nú 5 börn skráð til leiks en þeim gæti þó fjölgað eitthvað (2-3 til viðbótar) Það fer eftir endanlegum fjölda barnanna hvort einn eða tveir kennarar verði ráðnir. Greiddar eru 50 evrur fyrir skiptið en skólinn er á sunnudögum í Waterloo á milli kl. 10:30 og 13:00. Fyrsti kennsludagur verður 2. október og alls 7 skipti á þessari önn. Undirrituð veitir allar frekari upplýsingar í síma 0478 37 4807 eða hs. 02 784 3923. Einnig má hafa samband í netfang jon.gislason@skynet.be
 
F.h. Skólanefndar,
 
bestu kveðjur,
Ásta Sigurðardóttir

11.09.2005

Skólanefnd var skipuð þeim Angantý Einarssyni, Ólöfu Österby og Ástfríði Sigurðardóttur sem tók að sér formennsku. Ráðning kennara gekk vonum framar og var mikill fengur að því að fá Ásgerði Magnúsdóttur og Guðrúnu Jónsdóttur, sem báðar eru kennarar að mennt, til liðs við skólann. Ólöf Österby og Ingunn Ólafsdóttir tóku að sér leikskólahópinn sem var óvenju stór í ár. Eftir áramót flutti Ingunn til Íslands og Linda Ómarsdóttir kom í hennar stað. Eins og síðustu ár fór skólastarfið fram í húsnæði Skandinavíska skólans í Waterloo.


11.09.2005

Vinsamlegast skráið börn ykkar í skólann fyrir 19. september þannig að unnt sé að skipuleggja skólaárið. Ráðgert er að kennsla hefjist sunnudaginn 2. október.


.:: Skođa eldri fréttir...

 

"