.:: Forsíđa
.:: Fréttasafn

.:: Félag Íslendinga í Berlín
.:: Félag Íslendinga í London
.:: Félag Íslendinga í Luxemborg
.:: Íslandsfélagið í Belgíu
.:: Vinafélag Íslands og Niðurlanda
.:: Önnur átthagafélög

.:: Euro-Ice



.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


 

Euro-Ice icon Euro-Ice: 22.06.2006
10 ára afmælishátíðargolfmót EURO-ICE

Tíu ára afmælishátíðargolfmót EURO-ICE verður haldið dagana 28. september – 1. október. Að þessu sinni varð Frakkland fyrir valinu fyrir mótið og verður EURO-ICE 2006 haldið á “Golf Disneyland”, frábærum golfvelli í næsta nágrenni við “Disneyland Paris” og því tilvalið fyrir alla fjölskylduna að mæta og njóta lífsins í frábæru umhverfi. Mótið hefst á fimmtudegi, og spilaðar verða þrjár umferðir. Gist verður á “Radisson SAS Hotel at Disneyland® Resort Paris” sem er nýtt glæsilegt 4* hótel alveg við golfvöllinn.

París er miðsvæðis fyrir þá sem búa í Evrópu og auðvitað líka fyrir þá sem koma lengra að.  Frá Charles De Gaulle flugvelli tekur ekki nema u.þ.b. 10 mínútur að fara með lest (TGV) að lestarstöð sem er aðeins í nokkra mínútna fjarlægð frá hótelinu.

Til að skrá þátttöku biðjum við ykkur að fylla út meðfylgjandi skráningareyðublað og senda það fyrir 1. júlí 2006

með faxi á: +31(0)842229578 eða
innskannað með Emaili á: thorsa@kabelfoon.nl

Bókunin verður staðfest síðar á tölvupósti.  

Mikilvægt er að skrá bæði komu- og brottfarardag. Athugið að eftir 1. júlí gæti reynst erfitt að gera nýjar bókanir þar sem framboð á gistingu er takmarkað!

Euro-Ice tilkynning (pdf)

Prenta þessa síðu


.:: Skođa eldri fréttir...