EURO-ICE, golfmót Íslendinga sem búsettir í Evrópu, fór fram dagana 28. september til 1. október í Disneyland París í Frakklandi. Fyrsta Euro-Ice mótið fór fram árið 1997 og var því mótið í ár það tíunda í röðinni. Þátttaka var frábær en alls skráðu 110 kylfingar sig til leiks en alls voru 140 þátttakendur um þessa helgi auk rúmlega 30 barna. Gist var á hóteli við Disneyland og var helgin því frábær fjölskylduskemmtun. Undirbúnings- og styrktaraðilar mótsins var Landsbankinn. Mótsstjóri var Þór Thorarensen.
Leikið var golf frá fimmtudegi til laugardags við frábærar aðstæður. Á fimmtudegi var leikið í fjögurra manna Texas Scramble liðum. Á föstudegi og laugardegi var leikin einstaklingskeppni, veitt voru verðlaun fyrir samanlagðan fjölda punkta.
Boðið var upp á ferð í Disneyland skemmtigarðinn á föstudegi sem vakti mikla lukku hjá yngsta aldurshópnum. Á föstudagskvöldi var boðið til grillveislu og á laugardeginum fór fram glæsilegt lokahóf og verðlaunaafhending.
Verðlaunahafar í Texas Scramble
|
1. sæti – 65 högg |
2. sæti – 67 högg |
3. sæti – 68 högg |
| Anna Kristín Einarsson |
Andrea Ásgrímsdóttir |
Auður Hermannsdóttir |
| Stefán Jóhannson |
Bergur Guðmundsson |
Hörður Jónsson |
| Lárus Sigurðsson |
Valdimar Óskarsson |
Málfríður Pálsdóttir |
| Þórir Örn Þórisson |
Lovísa Björg Traustadóttir |
Þorsteinn Þorsteinsson |
Verðlaunahafa í punktakeppni
|
Karlaflokkur |
Kvennaflokkur |
| 1. sæti |
Snæbjörn Sigurðsson 74 punktar |
Andrea Ásgrímsdóttir 66 punktar |
| 2. sæti |
Richard Okroj 73 punktar |
Birna Hafnfjörð Rafnsdóttir 64 punktar |
| 3. sæti |
Halldór Stefánsson 73 punktar |
Sigrún Þorgilsdóttir 64 punktar |
Verðlaun voru glæsileg og má þar nefna flugferðir frá Landsbankanum og Icelandair. Jafnframt veitti Landsbankinn 17 nándarverðlaun.
Mótið þótti vel heppnað og ljóst að margir eru þegar farnir að hlakka til Euro-Ice mótsins að ári. Tilkynnt var á lokahófi að undirbúnings- og styrktaraðilar árið 2007 verði Icelandair.