Við viljum minna á að nýtt starfsár er hafið hjá Íslandsfélaginu í
Belgíu. Hvert starfsár hefst eftir árlegan aðalfund félagsins (sem í ár
var þann 1. mars síðastliðinn) og stendur til næsta aðalfundar sem
verður um svipað leyti
á næsta ári. Það er því kominn tími til þess að greiða félagsgjöldin
fyrir starfsárið 2010-2011......
Félagsgjöldin eru 50 evrur fyrir
fullorðna, 20 evrur fyrir námsmenn en ekkert er greitt fyrir börn 18 ára
og yngri.
Greiðist inná reikning félagsins: ING 310-1074359-73. Taka skal fram
að verið sé að borga félagsgjöld.
Án félagsgjalda er erfitt að
halda út öflugri starfsemi og vonum við að sem flestir sjái sér fært að
styðja við
félagið með því að borga þau.
kk.,
Stjórnin



Íslandsfélagið í Belgíu: 12.03.2010