.:: Forsíđa
.:: Fréttasafn

.:: Félag Íslendinga í Berlín
.:: Félag Íslendinga í London
.:: Félag Íslendinga í Luxemborg
.:: Íslandsfélagið í Belgíu
.:: Vinafélag Íslands og Niðurlanda
.:: Önnur átthagafélög

.:: Euro-Ice



.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


 

Íslandsfélagið í Belgíu icon Íslandsfélagið í Belgíu: 27.04.2010
Leyndardómar Brussel – Gönguferð með Jóni Óskari Sólnes
Leyndardómar Brussel – Gönguferð með Jóni Óskari Sólnes

Ágætu félagar, um leið og stjórn Íslandsfélagsins biðst velvirðingar á því að hafa frestað gönguferðinni um miðborg Brussel síðastliðinn sunnudag, undir leiðsögn Jóns Óskars Sólness, er nú blásið í herlúðrana og boðað til gönguferðarinnar sunnudaginn 9. maí, sama hvað tautar og raular í belgískum veðurfræðingum.

Langtíma veðurspá gerir ráð fyrir 16-18 stiga hita, logni og skúrum. Lagt verður upp frá konungshöllinni, til móts við Parc garðinn (Metro stöðin Parc skammt frá) kl. 15:45 og gengið niður á Paleizstraat, gegnt höllinni, en þar geta þeir sem koma akandi (yfirleitt næg bílastæði) slegist í hópinn, þó aldrei síðar en kl. 16:00.

Jón ku þekkja vel til sögu miðbæjarins og helstu bygginga, en hvetur alla til að leggja orð í belg. Ráðgert er að túrinn taki ríflega 90 mínútur, með viðkomu á sossum eins og einu kaffihúsi, en honum lýkur síðan við barinn „A la Couronne“, Rue Sainte Catherine 42, þar sem Íslandsfélagið mun bjóða öllum félögum, sem greitt hafa árgjaldið, upp á hressingu.

Fyrir þá sem vilja glöggva sig á væntanlegri gönguleið er bent á kortið hér (sjá einnig viðhengi):
Kort af gonguleidinni

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í ferðina, en stjórnin hvetur alla til að mæta og skorar um leið á þá sem eiga ógreidd félagsgjöld að standa skil sem allra fyrst, á reikning félagsins nr. ING 310-1074359-73. Takið fram að um greiðslu árgjalds sé að ræða.  
 
Stjórnin