Leyndardómar Brussel – Gönguferð með Jóni Óskari Sólnes
Ágætu
félagar, um leið og stjórn Íslandsfélagsins biðst velvirðingar á því að
hafa frestað gönguferðinni um miðborg Brussel síðastliðinn sunnudag,
undir leiðsögn Jóns Óskars Sólness, er nú blásið í herlúðrana og boðað
til gönguferðarinnar sunnudaginn 9.
maí, sama hvað tautar og raular í belgískum veðurfræðingum.
Langtíma
veðurspá gerir ráð fyrir 16-18 stiga hita, logni og skúrum. Lagt verður upp frá konungshöllinni, til móts
við Parc garðinn (Metro stöðin Parc skammt frá) kl. 15:45 og
gengið niður á Paleizstraat, gegnt höllinni, en þar geta þeir sem koma
akandi (yfirleitt næg bílastæði) slegist í hópinn, þó aldrei síðar en
kl. 16:00.
Jón ku þekkja vel til sögu miðbæjarins og helstu
bygginga, en hvetur alla til að leggja orð í belg. Ráðgert er að túrinn
taki ríflega 90 mínútur, með viðkomu á sossum eins og einu kaffihúsi,
en honum lýkur síðan við barinn „A la Couronne“, Rue Sainte Catherine
42, þar sem Íslandsfélagið mun bjóða öllum félögum, sem greitt hafa
árgjaldið, upp á hressingu.
Fyrir þá sem vilja glöggva sig á
væntanlegri gönguleið er bent á kortið hér (sjá einnig viðhengi):
Kort af gonguleidinni
Ekki er nauðsynlegt að
skrá sig í ferðina, en stjórnin hvetur alla til að mæta og skorar um leið á þá sem eiga
ógreidd félagsgjöld að standa skil sem allra fyrst, á reikning
félagsins nr. ING 310-1074359-73. Takið fram að um greiðslu
árgjalds sé að ræða.
Stjórnin



Íslandsfélagið í Belgíu: 05.05.2010