Nú er komið að því að skrá sig í vorferð Íslandsfélagsins sem farin
verður laugardaginn 29. maí. Sendið skráningu á netfangið islandsfelag@gmail.com. Takið
fram að um skráningu sé að ræða og hversu margir verða í för.
Skráningarfrestur er til loka sunnudagsins 16. maí. Mikilvægt er að þeir
sem vilja gista á tjaldsvæðinu láti vita um fjölda fullorðinna, barna
og aldur barnanna, en stjórnin þarf að panta tjaldstæðin í síðasta lagi
17. maí svo unnt sé að tryggja tjaldrými.
Nánar um vorferð Íslandsfélagsins til Gravelines:
Nú er komið að því að skrá sig í vorferð Íslandsfélagsins sem farin
verður laugardaginn 29. maí. Áfangastaður er „Íslandsbærinn“ Gravelines á
norðurströnd Frakklands, í u.þ.b. 180 km. fjarlægð frá Brussel. Vísast
nánar til umfjöllunar um þennan snotra bæ í síðustu tveimur tölublöðum
BELGS, en dagskráryfirlit hljóðar svo:
Kl. 12:30 Sameiginlegur hádegisverður á Le Retour d´Islande
Kl. 14:00 Opinber móttaka í ráðhúsi bæjarins
Kl. 15:00 Skoðunarferð í Íslendingahúsið Maison de l’Islandais /
síkjasigling
Kl. 16:00 Síkjasigling / skoðunarferð í Maison de l’Islandais
Kl. 17:00 Skoðunarferð í sjóminjasafnið Musée de la Mer
Kl. 19:00 Grillveisla og kvöldvaka
Lagt er til að þeir sem ætla að gista á tjaldsvæði staðarins leggi af
stað frá Brussel kl. 09 árdegis og hittist á Place Charles Valentin í
miðbæ Gravelines (gegnt Hotel du Beffroi) kl. 11:30. Þaðan verði haldið á
tjaldsvæðið Plage de Petit-Fort-Philippe og slegið upp tjöldum
steinsnar frá ströndinni (sjá www.camping-des-dunes.com). Hópurinn hittist síðan
allur á nefndu torgi, í síðasta lagi kl. 12:15. Þar mun gjaldkeri taka
við greiðslum fyrir dagskrárliði, en fjárhæð ræðst af því hvort
félagsgjöld hafa verið greidd eður ei.
Dagskráin hefst kl. 12:30 með hádegisverði á veitingastaðnum Le Retour
d´Islande. Börnum standa til boða kjúklinganaggar, franskar, gosdrykkur
og ís í eftirrétt á aðeins 5 evrur. Matseðill fyrir fullorðna er sem hér
segir:
Menu proposé (15,00 € par personne) :
- Cocktail de bienvenue et ses croques en bouche
- Assiette de poisson fumé maison
- Escalope de volaille savoyarde – pommes sautées et légumes
du jour
- Tarte aux fruits maison
- Boissons : eau minérale – ¼ vin ou 1 bière ou 1 soda – café
Kl. 14:00 hefst opinber móttaka í ráðhúsinu. Að henni lokinni verður
hópnum skipt. Helmingur skoðar Íslendingahúsið „Maison de l’Islandais“, á
meðan hinn helmingurinn fer í siglingu um síki bæjarins. Er ráðgert að
hvort um sig taki tæpa klukkustund, þannig að kjósi fólk að fara í hvoru
tveggja þá ljúki þessum dagskrárlið um kl. 17:00. Formlegri dagskrá
lýkur síðan kl. 18:00, eftir heimsókn í sjóminjasafnið „Musée de la
Mer“.
Kl. 19:00 mun Íslandsfélagið standa fyrir grillveislu á tjaldsvæðinu.
Félagsmenn þurfa aðeins að mæta með kjöt-tutlur og meðlæti, en stjórnin
leggur til kol, diska, hnífapör, servíettur o.s.frv. og mun hafa á
boðstólum drykki, jafnt fyrir unga sem aldna. „Drekkum veig sem viljum,
vel glýjaðra þýja ...“ kvað Egill til forna og merki hans verður svo
sannarlega haldið á lofti með kvöldvöku, gítarspili og söng fram undir
myrkur, auk þess sem boðið verður upp á leiki fyrir börnin.
Ágætu félagar, nú ríður á að skrá sig í ferðina, á netfangið islandsfelag@gmail.com . Takið
fram að um skráningu sé að ræða og hversu margir verða í för.
Skráningarfrestur er til loka sunnudagsins 16. maí. Mikilvægt er að þeir
sem vilja gista á tjaldsvæðinu láti vita um fjölda fullorðinna, barna
og aldur barnanna, en stjórnin þarf að panta tjaldstæðin í síðasta lagi
17. maí svo unnt sé að tryggja tjaldrými.
Félagar, sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2010-2011, greiða aðeins
10 evrur fyrir hádegisverð og fá ókeypis aðgang að söfnum og
bátsferðum. Börnum þeirra er og tryggður hádegisverður á 5 evrur. Sömu
félagar og börn njóta ókeypis drykkjarveitinga í grillveislunni.
Stjórnin hvetur því alla til að standa skil á ógreiddum félagsgjöldum,
en reikningur félagsins er ING 310-1074359-73. Takið fram að um greiðslu
árgjalds sé að ræða.
Stjórnin



Íslandsfélagið í Belgíu: 05.05.2010