.:: Forsíđa
.:: Fréttasafn

.:: Félag Íslendinga í Berlín
.:: Félag Íslendinga í London
.:: Félag Íslendinga í Luxemborg
.:: Íslandsfélagið í Belgíu
.:: Vinafélag Íslands og Niðurlanda
.:: Önnur átthagafélög

.:: Euro-Ice



.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


 

Íslandsfélagið í Belgíu icon Íslandsfélagið í Belgíu: 07.06.2010
17. júní hátíðarhöld Íslandsfélagsins í Belgíu
Stjórn Íslandsfélagsins stendur fyrir hinni árlegu 17. júní hátíð, sem að þessu sinni verður haldin laugardaginn 19. júní á lóð Skandinavíska skólans í Waterloo (Scandinavian School of Brussels, Square d'Argenteuil 5, 1410 Waterloo). Að venju verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla aldurshópa og hefst hún kl. 13:00 með hinu sívinsæla kvennahlaupi. Skráningu er lokið og hefur þátttaka sjaldan verið jafn góð og í ár.

Dagskráin er annars sem hér segir
:

Kl. 13:00         Kvennahlaup
Kl. 14:00         Ávarp fjallkonu
Kl. 14:15         Skrúðganga
Kl. 14:30         Grillveisla
Kl. 15:00         Leikir fyrir unga sem aldna
Kl. 17:00         Dagskrárlok

Að loknu kvennahlaupi og afhendingu viðurkenninga mun fjallkona ávarpa hópinn, en því næst verður gengið fylktu liði í skrúðgöngu kringum skólabygginguna. Eru foreldrar hvattir til að koma með fána fyrir börn sín, en félagið mun reyna að útvega fána fyrir þá sem ekki eiga. Grillið verður á sínum stað og munu hinir annáluðu grillmeistarar Fúsi og Kalli töfra fram pylsur í pylsubrauðum, ásamt steiktum og hráum lauk, tómatsósu og að sjálfsögðu rammíslensku sinnepi og remúlaði. Spilað verður á gítar og lagið tekið. Öllum verður boðið upp á gosdrykki og djús, en fullorðnum stendur einnig til boða bjór og léttvín meðan birgðir endast.

Boðið verður upp á ýmsa leiki fyrir alla aldurshópa, s.s. kubb-spilið, krókett, flugdreka, fótbolta, körfubolta, pokaboðhlaup og boðhlaup með borðtennisbolta og spaða. Börnin fá ókeypis bland í poka fyrir þátttöku í leikjum. Ráðgert er að dagskránni ljúki eigi síðar en kl. 17:00. Dagskráin er öllum opin, en stjórnin biður þó alla þá sem ekki hafa nú þegar greitt félagsgjald fyrir starfsárið 2010-2011 að minnast þess að forsenda fyrir öflugu félagsstarfi er sú að stjórnin hafi úr einhverjum fjármunum að moða.

 

Stjórnin.