.:: Forsíđa
.:: Fréttasafn

.:: Félag Íslendinga í Berlín
.:: Félag Íslendinga í London
.:: Félag Íslendinga í Luxemborg
.:: Íslandsfélagið í Belgíu
.:: Vinafélag Íslands og Niðurlanda
.:: Önnur átthagafélög

.:: Euro-Ice



.:: Stjórnarráđ Íslands
.:: EES-setriđ
.:: Hagstofan

.:: Fréttablađiđ
.:: Morgunblađiđ
.:: Vísir
.:: Ríkisútvarpiđ
.:: Bćjarins Besta
.:: Víkurfréttir

.:: Forsíđa islandus
.:: Fréttasafn
.:: Um islandus
.:: Efnisskráning
.:: Vefpóstur
.:: Póstlisti
.:: Gera ađ upphafssíđu
.:: islandus.net í uppáhald


 

Íslandsfélagið í Belgíu icon Íslandsfélagið í Belgíu: 08.06.2010
Ferð Íslandsfélagsins til Antwerpen
Frestur til þess að skrá sig í ferðina til Antwerpen lýkur í lok dags á fimmtudag (10. júní)!  Nánari upplýsingar um ferðina má nálgast hér að neðan:

Laugardaginn 12. júní nk. mun Íslandsfélagið standa fyrir gönguferð um Antwerpen. Leiðsögumenn verða tveir staðarkunnir enskumælandi menn, sem ætla að leiða okkur um merkilega og sögufræga staði í borginni.

Túrinn hefst kl. 11:00 á brautarstöðinni í Antwerpen „Central Hall“ og lýkur kl. 15:00. Í hádeginu munum við setjast níður á „kósý“ veitingastað og fá okkur bita, sem verður á kostnað hvers og eins. Þótt tíminn sé nokkuð drjúgur þá er ekki um langar vegalendir að ræða og enginn ætti að verða sárfættur.

Fólk hefur val um hvernig það kemur sér á staðinn, bílandi eða í lest, en við mælum með að taka lestina frá Central Station í Brussel, sem leggur af stað kl. 10:22 og lendir 10:57 á Antwerp Central.

Brussels-Central 10:22 - Antwerp-Central 10:57 -lest IC 9217 (áttin er Essen, fyrir norðan Antwerpen)

Lestin lendir á level 2 þannig þið verðið að taka rúllustigana og fylgja merkingunni „Koningin Astridplein“ og þá endið þið í Central Hall hvelfingunni, sjá mynd í viðhengi. Nóg er einnig af bílastæðum fyrir utan stöðina fyrir þá sem sem koma akandi.

Gönguferðin kostar ekkert fyrir félaga í Íslandsfélaginu og er félagsmönnum velkomið að taka með sér gesti sína. Þar sem leiðsögnin fer fram á ensku er upplagt fyrir félagsmenn af erlendum uppruna að nýta sér tækifærið og við hvetjum þá sérstaklega til að mæta.

Þeir sem hyggjast mæta eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það á islandsfelag@gmail.com svo að við getum gert ráðstafanir varðandi borðapantanir í hádegisverðinum.

Loks hvetjum við sem flesta til að gerast félagar í Íslandsfélaginu.

Stjórnin.