Jarðhitaborar fluttir úr landi
Samorka segir, að fjölda sérhæfðs starfsfólks hafi að undanförnu verið sagt upp hjá fyrirtækjum, sem sérhæfa sig í nýtingu jarðhita. Þá sé verið að undirbúa flutning jarðhitabora úr landi.
Notar biblíuna í pólitískum tilgangi
Høgni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins í Færeyjum, segir að Jenis av Rana, formaður Miðflokksins, tali ekki fyrir munn kristinna Færeyinga með skammarlegum ummælum um Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra heldur reyni hann að nota biblíuna í pólitískum tilgangi og æsa upp lítinn hóp bókstafstrúarmanna.
Vilja semja um nýtingu aflaheimilda
Meirihluti endurskoðunarnefndar um fiskveiðistefnuna telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins sé skýr.
Herjólfur siglir ekki eftir hádegi
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur siglir ekki klukkan 14.30 frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar. Enn standa vonir til þess, að skipið geti siglt klukkan 17:30 en fyrstu ferðinni, sem fara átti klukkan 6 í morgun, var aflýst. Þá sigldi skipið ekkert í gær.