Íslandsfélagið í Belgíu: 08.06.2010 |
|---|
Ferð Íslandsfélagsins til Antwerpen |
|---|
Frestur til þess að skrá sig í ferðina til Antwerpen lýkur í lok dags á fimmtudag (10. júní)! Nánari upplýsingar um ferðina má nálgast hér að neðan: Laugardaginn 12. júní nk. mun Íslandsfélagið standa fyrir gönguferð um Antwerpen. Leiðsögumenn verða tveir staðarkunnir enskumælandi menn, sem ætla að leiða okkur um merkilega og sögufræga staði í borginni. Túrinn hefst kl. 11:00 á brautarstöðinni í Antwerpen „Central Hall“ og lýkur kl. 15:00. Í hádeginu munum við setjast níður á „kósý“ veitingastað og fá okkur bita, sem verður á kostnað hvers og eins. Þótt tíminn sé nokkuð drjúgur þá er ekki um langar vegalendir að ræða og enginn ætti að verða sárfættur. Fólk hefur val um hvernig það kemur sér á staðinn, bílandi eða í lest, en við mælum með að taka lestina frá Central Station í Brussel, sem leggur af stað kl. 10:22 og lendir 10:57 á Antwerp Central. Brussels-Central 10:22 - Antwerp-Central 10:57 -lest IC 9217 (áttin er Essen, fyrir norðan Antwerpen) Lestin lendir á level 2 þannig þið verðið að taka rúllustigana og fylgja merkingunni „Koningin Astridplein“ og þá endið þið í Central Hall hvelfingunni, sjá mynd í viðhengi. Nóg er einnig af bílastæðum fyrir utan stöðina fyrir þá sem sem koma akandi. Gönguferðin kostar ekkert fyrir félaga í Íslandsfélaginu og er félagsmönnum velkomið að taka með sér gesti sína. Þar sem leiðsögnin fer fram á ensku er upplagt fyrir félagsmenn af erlendum uppruna að nýta sér tækifærið og við hvetjum þá sérstaklega til að mæta. Þeir sem hyggjast mæta eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það á islandsfelag@gmail.com svo að við getum gert ráðstafanir varðandi borðapantanir í hádegisverðinum. Loks hvetjum við sem flesta til að gerast félagar í Íslandsfélaginu. Stjórnin. |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 08.06.2010
Ólíklegt er talið að Orkustofnun geri athugasemd við þá ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að hækka verð á dreifingu rafmagns um 40%.
Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag þegar beiðni um aðstoð barst vegna bíls sem fastur var á leiðinni upp að Axarfossi á Mýrdalssandi, svonefndri Öldufellsleið. Bíllinn festist í Hólmsá en 10 erlendir ferðamenn sem í honum voru höfðu allir komist í land af sjálfsdáðum.
Stefáni Einarssyni, hönnunarstjóra voru í dag afhent fyrstu verðlaun í samkeppni Sameinuðu þjóðanna um bestu auglýsinguna til að vekja athygli á baráttunni gegn fátækt í heiminum. Soffía Spánardrottning stýrði athöfninni í Madrid, en spænski leikarinn Antonio Banderas var heiðraður við sama tilefni fyrir störf sín í þágu Sameinuðu þjóðanna.
Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti í dag Hvatningarverðlaun íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. Verðlaunin eru nú afhent í fyrsta sinn og er markmið verðlaunanna að vekja athygli á því starfi sem fram fer á frístundaheimilunum, veita starfsfólki frístundaheimila hvatningu og stuðla að aukinni nýbreytni og öflugu þróunarstarfi.
Stefnt er að því að skýrsla þingmannanefndar sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis verði prentuð í nótt og dreift á Alþingi á morgun.