Íslandsfélagið í Belgíu: 22.06.2010 |
|---|
Myndir frá 17. júní hátíðarhöldum 2010 |
|---|
Stjórn Íslandsfélagsins vill þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína á
17. júní hátíðarhöld Íslandsfélagsins í Waterloo á laugardaginn. Um 38
konur og karlkonur tóku þátt í kvennahlaupinu og alls voru
hátíðargestir
eitthvað í krinum 80 manns. Hægt er að nálgast myndir frá hátíðarhöldunum með því að smella á eftirfarandi slóð: http://ernaogsigfus.smugmug. Stjórnin |
|---|



Íslandsfélagið í Belgíu: 22.06.2010
Ólíklegt er talið að Orkustofnun geri athugasemd við þá ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að hækka verð á dreifingu rafmagns um 40%.
Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag þegar beiðni um aðstoð barst vegna bíls sem fastur var á leiðinni upp að Axarfossi á Mýrdalssandi, svonefndri Öldufellsleið. Bíllinn festist í Hólmsá en 10 erlendir ferðamenn sem í honum voru höfðu allir komist í land af sjálfsdáðum.
Stefáni Einarssyni, hönnunarstjóra voru í dag afhent fyrstu verðlaun í samkeppni Sameinuðu þjóðanna um bestu auglýsinguna til að vekja athygli á baráttunni gegn fátækt í heiminum. Soffía Spánardrottning stýrði athöfninni í Madrid, en spænski leikarinn Antonio Banderas var heiðraður við sama tilefni fyrir störf sín í þágu Sameinuðu þjóðanna.
Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti í dag Hvatningarverðlaun íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. Verðlaunin eru nú afhent í fyrsta sinn og er markmið verðlaunanna að vekja athygli á því starfi sem fram fer á frístundaheimilunum, veita starfsfólki frístundaheimila hvatningu og stuðla að aukinni nýbreytni og öflugu þróunarstarfi.
Stefnt er að því að skýrsla þingmannanefndar sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis verði prentuð í nótt og dreift á Alþingi á morgun.