Guðrún Benedikta opnaði sýningu föstudaginn 28.maí sl. í Galerie d'Esch, 26 rue du Moulin, 4251 Esch/Alzette. Sýningin stendur til 11. júní og er opin þriðjudaga til laugardags frá kl. 14.30 - 18.30.
Málverkin eru unnin með acryllitum og einnig með "patine au vin". Það að auki hefur hún verið að gera tilraunir með að blanda ösku úr Eyjafjallajökli út í litablönduna og mála með því. Myndir af þannig verkum eru á heimasíðu Rúnu: www.rbenedikta.com
Rúna verður á svæðinu í dag 2.júní milli kl. 16.00 - 18.30 og mögulega eitthvað á laugardag.
Þeir sem hafa áhuga á að koma er bent á að leggja í bílastæðahúsinu sem stendur við Bvd.Kennedy, á horninu á Kennedy/Libération - og galleríið er á horninu á Libération/rue Moulin.
Myndir frá opnuninni eru á síðunni http://www.flickr.com/photos/rbenedikta



Lúxemborg: 02.06.2010