Luxembourg sókn: 02.06.2010 |
|---|
Fermingar- og skírnarmessa sunnudag 6.júní og lokun gatna í miðborg Luxembourg |
|---|
Guðsþjónusta verður haldin 6. júní kl. 1400 í Kirkju Mótmælenda, 5 r. de la Congrégation, Luxembourg. Sr. Halldór verður með samverustund laugardaginn 5.júní fyrir foreldra og fermingarbörn. Sr. Halldór verður í Luxembourg frá fimmtud. 3.júní til þriðjud. 8.júní, þeir sem óska eftir viðtali við Halldór dagana 4.júni og 7.júní vinsamlega hafið sambandi við hann í síma +354-856 1571 eða einhvern úr kirkjunefndinni. Foreldrar fermingarbarna fyrir árið 2011 eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við sr. Halldór í síma 354-856-1571 eða við einhvern úr kirkjunefndinni, hvort sem þau fermast hér í Lux eða á Islandi. !ATHUGIÐ! Lokunin er vegna reiðhjólakeppni Tour Luxembourg (Skoda) sem fram fer. Það verður erfitt að fá bílastæði fyrir fólk sem kemur til kirkju. Bót er í máli að hægt er að komast hraðbrautina frá flugvellinum yfir Kennedy brúnna á Glacis bílastæðið. Frá bílastæðinu er hægt að ganga til kirkju, eða ferja fólk á milli. Nánari upplýsingar má fá hjá umferðardeild Lögreglu í síma 4997-4700. eða almennum þjónustu síma 4500. Bestu kveðjur. |
|---|


