Íslenskukennslan hefst 3. október næstkomandi. Kennt er á þriðjudögum kl. 13:30 til 15:30 í sama húsnæði og undanfarin ár í Verainsbau í Godbrange.
Börnin eiga að mæta með pennaveski og eina möppu A4.
Breytingar eru á kennaraliði skólans, Elísabet Sigurðardóttir, Elín Dröfn Valsdóttir og Herdís Matthíasdóttir hætta störfum og við taka Heiða og Elsa Dóróthea Kjartansdóttir.
FÍL þakkar Elísabetu, Elínu og Herdísi kærlega góð störf og samstarfið.
Kennsludagar haustannar 2006
- 3. október 2006
- 10. október 2006
- 17. október 2006
- 24. október 2006
- 7. nóvember 2006
- 14. nóvember 2006
- 21. nóvember 2006
- 28. nóvember 2006
Kennsludagar vorannar 2007
- 16. janúar 2007
- 23. janúar 2007
- 30. janúar 2007
- 6. mars 2007
- 13. mars 2007
- 20. mars 2007
- 27. mars 2007
Búið er að sækja um sal fyrir kennslu barna sem eru í International skólanum, þar sem Dagný Broddadóttir mun hafa umsjón, en svör hafa enn ekki borist.
Kennslan er veitt börnum félagsmanna, þeim að kostnaðarlausu.
Vinsamlegast skráið börnin á netfanginu skoli-fil@islandus.net og tilgreinið nafn barnsins, fæðingardag og ár, heimilisfang og síma ásamt nöfnum foreldra. Ef tími hefur ekki unnist til að skrá börnin, þá endilega mætið samt og skráð verður á staðnum.


