Vinafélagið Ísland-Niðurlönd var stofnað árið 1980 og telur nú rúmlega 350 félaga. Markmið þess er að efla menningartengsl milli íslensku- og hollenskumælandi, meðal annars með því að skipuleggja samkomur, fyrirlestra og annað menningarstarf. Félagið veitir upplýsingar um Ísland og svarar fyrirspurnum. Málgagn félagsins "Huginn & Muninn" kemur út nokkrum sinnum á ári en þar má finna greinar um ýmis málefni. Í félaginu eru bæði Íslendingar og Hollendingar. Í íslenska hópnum eru Ísleningar sem dvelja í Hollandi í ákveðinn tíma vegna náms eða vinnu, svo og Íslendingar sem sestir eru hér að. Meðal hollensku félagsmannanna á stór hópur íslenska maka en þeim fer hins vegar óðum fjölgandi sem ganga í félagið vegna áhuga síns á Íslandi og íslensku þjóðinni. Þessi áhugi hefur oft aukist eftir ferðalag til þessa óneitanlega sterka lands! Þessi margliti hópur hittist nokkrum sinnum á ári. Við höldum árlega saman upp á þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní, á fallegum stað úti á landi. Í byrjun desember er haldin íslensk jólatrésskemmtun, aðallega fyrir yngra fólkið. Þar gæðum við okkur á heimabökuðum tertum og sælgæti auk þess sem jólasveinar mæta á staðinn og dansa með okkur í kringum jólatréð. Stærsta samkoman á ári hverju er þó Þorrablótið, sem að haldið er í Utrecht í febrúarmánuði. Þar er boðið upp á hlaðborð með íslenskum þorramat og þorrablóts-hljómsveitin, sem sérstaklega kemur saman fyrir þetta tækifæri, sér um að allir dansi fram á rauða nótt. Þeir sem vilja styðja þessa starfsemi geta gerst félagar gegn greiðslu ársgjalds, €23,- (€18,- fyrir námsfólk), inn á póstgíróreikning félagsins nr. 4215100. |
|---|


